22.06.2020
Ferðafélag Íslands hefur tekið í notkun nýja göngubrú yfir Krossá. Göngubrúin er 25 metra löng og á hjólum.
Stefán Jökull Jakobsson, umsjónarmaður skála, segir að brúin sé kranabóma og smíðuð á vörubílahásingar svo hægt sé að færa hana eftir þörfum þar sem Krossá er breytileg.
Hann bendir fólki á að nú gæti gestir sem ekki treystu sér á bílum yfir Krossá lagt bílunum við Álfakirkju og farið fótgangandi yfir í Langadal.
19.06.2020
Skógasafnið á Skógum tekur vel á móti fjölskyldum í allt sumar og býður upp á tilboð fyrir alla fjölskylduna.
Á Skógum er líka að finna Húsasafn og Samgöngusafn, skemmtun og fræðsla fyrir alla og ratleikur fyrir fróðleiksfús börn á öllum aldri.
19.06.2020
Fengum senda þessa góðu mynd frá íbúa á Hvolsvelli rétt í þessu, hitiamælir sem sýnir um 20 stiga hita í forsælu.
Helgin lofar góðu í Rangárþingi eystra - fullt af tjaldsvæðum og afþreyingu fyrir alla.
Góða helgi
18.06.2020
Björn Bjarnasson og Rut Ingólfsdóttir á Kvoslæk í Fljótshlíð voru verðlaunuð á 17. júní hátíðarhöldunum í Goðalandi fyrir framlag þeirra til menningarmála. Þau tóku við afreksbikar Búnaðafélags Fljótshlíðar fyrir árið 2020. Þau hafa staðið fyrir fjölda menningarviðburða á Kvoslæk síðast liðin ár og auðgað líf íbúa og gesta með fróðlegum erindum og listviðburðum.
Næsti viðburður í Hlöðunni á Kvoslæk verður 21. júní, en þá flytja systurnar Signý og Þóra Fríða Sæmundsdætur íslensk og erlend lög m.a. eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur frá Bjálmholti í Rangárvallasýslu.
18.06.2020
Í byrjun júní fóru Fljótshlíðarbændur í árlega vorferð inn á Fljótshlíðarafrétt. Þetta hafa þeir gert frá árinu 1971 og grætt upp stórt landsvæði, en þar er unnið samkvæmt landbótaáætlun. Upprekstarfélagið í Fljótshlíð hlaut Landgræðsluverðlaunin árið 2015 fyrir áratuga uppgræðslustarf og uppgræðslu á um 400 ha svæði. Í dag er verið að vinna með aðra 400 ha og er þátttaka bænda ávallt góð. Svæðið er einnig vinsælt útivistasvæði bæði sumar og vetur. Þaðan er stutt inn á Suðurhálendið. Rangárþing eystra hefur stutt við verkefnið til fjölda ára .
Á myndunum má sjá bændur sem fóru í ferðina í byjun júní. Myndir Kristinn Jónsson.
16.06.2020
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti í vor að bregðast við því ástandi sem Covid -19 hefur á ferðaþjónstugreinina í sveitarfélaginu með því að hrinda í framkvæmd ferðamálstefnu sveitarfélagsins af miklum krafti. Sérstök áhersla er lögð á tvo þætti stefnunar þ.e. aðgengi, fegrun og fjölgun áfangastaða og markaðs- og kynningarvinna fyrir greinina. Í sveitarfélaginu eru gríðarlega margir og fjölbreyttir áfangastaðir allt frá svartri fjöru í Landeyjum að jöklum, fossum, hellum og Suðurhálendinu. Auk þess er einnn merkasti menningararfur landsins er að finna á Byggðasafninu á Skógum, en þar er auk byggðasafnsins, húsa- og samgöngusafn.
Rangárþing eystra er gullnáma fyrir náttúru unnendur og viljum við með nýrri heimasíðu (visithvolsvollur.is) draga fram það helsta sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða. Í sveitarfélaginu er mikill fjöldi af ferðaþjónustufyrirtækjum sem bjóða nú upp á skemmtileg tilboð í afþreyingu, gistingu og mat, auk þess sem sum þeirra hafa sérsniðið tilboð og þjónustu fyrir Íslendinga. Á síðunni er mikið magn af upplýsingum þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Visithvolsvollur.is, nýja heimasíða fyrir ferðaþjónustu í Rangárþingi eystra, var opnuð formlega á fundi sveitarstjórnar í gær þann 15. júní 2020.
14.06.2020
Árleg vorferð starfsfólks á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli var farin s.l. miðvikudag í sól og blíðu. Farið var með South Coast Adventure ferðaskipuleggjendum á Hvolsvelli og var farartækið þrír ofurjeppar. Lagt var af stað frá Hvolsvelli og lá leiðin beint upp á Eyjafjallajökul þar sem allir nutu útsýnisins sem er einstakt í svona góðu veðri. Ferðanefndin bauð upp á gott nesti á toppi jökulsins, við Goðastein, sem er nauðsynlegt í svona ferð.
Af toppi Eyjafjallajökuls var keyrt inn í Þórsmörk, þar var grillað, gengið um og spilað eins og lög gera ráð fyrir á þessum merka og fallega stað. Keyrt var til baka um kvöldið og allt starfsfólk endurnært og ánægt með ferðina.
12.06.2020
Sveitarfélagið Rangárþing eystra varð til þann 9. júní árið 2002. Þá sameinuðust sex hreppar í austanverðri Rangárvallarsýslu í eitt sveitarfélag; Hvolhreppur, Fljótshlíðarhreppur, Austur-Landeyjahreppur, Vestur-Landeyjahreppur, Austur-Eyjafjallahreppur og Vestur-Eyjafjallahreppur. Hvert þessarar sveitarfélaga átti sitt félagsheimili sem rann inn í hið nýja sveitarfélag, Rangárþing eystra.
Gera má ráð fyrir því að það sé met á landsvísu en flest sveitarfélög eiga eitt félagsheimili þó að til séu sveitarfélög sem eiga ekkert og önnur sem eiga fleiri en eitt.
Sum félagsheimila í Rangárþingi eystra hafa fengið meira hlutverk en að sinna samfélagslegum verkefnum og eru þá hlutverkin oftast tengd ferðaþjónustu á einhvern hátt. Rangárþing eystra leigir út félagsheimlin fyrir stærri viðburði eins og fyrir stórar fundi, ráðstefnur, ættarmót, jarðafarir veislur eins og fermingar og afmæli. En einnig fara þar fram samfélagslegir viðburðir eins og 17. júní hátíðarhöld og þorrablót. Oft er talað um að félagsheimilin sem hjartað í hverju samfélagi og við erum rík að eiga sex slík heimili.
Skrifstofa Rangárþings eystra gefur upplýsingar um félagsheimilin og einnig má finna upplýsingar um þau á heimasíðu sveitarfélagsins.
12.06.2020
Í Rangárþingi eystra er hægt að heimsækja sveitarbæi og upplifa alvöru sveit. Það eru bæirnir Stóra Mörk og Ásólfsskáli undir Eyjafjöllum sem bjóða gestum heim.
Á báðum bæjunum er fjölbreyttur búskapur og taka ábúendur vel á móti gestum. Einnig er þar rekin ferðaþjónusta þannig að hægt er að dvelja í nálægð við býlin og dýrin og njóta um leið alls þess sem þau hafa upp á að bjóða. Hægt er að finna frekari upplýsingar á heimasíðun bondi.is
07.06.2020
Í hjarta Suðurlands og í skjóli tignarlegra jökla og fjalla er að finna nýtt glæsilegt tjaldstæði á Hellishólum í Fljótshlíð. Að sögn eiganda Hellishóla, Víðirs Jóhannssonar hefur vinnan við tjalstæðið staðið yfir síðast liðin tvö ár og var formlega tekið í notkun í maí 2020. Tjalstæðið er staðsett nálægt golfvellinum á Hellishólum og þar má finna nýtt salernis- og þjónustuhús með sturtum.
Frá tjaldsvæðinu er veitingarsalurinn á Hellishólum í göngufjarlægð ásamt skemmtilegum leiktækjum fyrir börn á öllum aldri. Á síðast ári var bætt við vinsælum hoppukastala á leiksvæðið og á hverju vori er flutt bleikja og sjóbirtingur í tjörn sem gaman er að veiða í. Á Hellishólum er vinsæll golfvöllur sem hentar öllum, bæði byrjendum og lengra komnum, og er frábær fjölskylduskemmtun.