Þann 18. september sl. hittist lítill hópur í Skógasafni en tilefnið var afhending gjafar til Skógasafns frá Skúla Jónssyni og Sjálfseignarstofnuninni um Gamla bæinn í Múlakoti.
Gjöfin var garðbekkur og ekkert venjulegur bekkur. Efniviðurinn er reyniviður, vaxinn í Múlakoti, önnur kynslóð frá lítilli reyniplöntu sem Eyjólfur Þorleifsson, sonur hjónanna í Múlakoti, Þuríðar og Þorleifs, sótti í Nauthúsagil árið 1897 og gaf Guðbjörgu systur sinni.
Sá sem felldi tréð var Björgvin Eggertsson, kennari við Garðyrkjuskólann á Reykjum og meistari í trjáfellingum. Hönnuður og smiður bekkjarins er Skúli Jónsson fv. bóndi í Þykkvabæ í Landbroti.
Við afhendinguna komu saman Skúli Jónsson, Stefán Guðbergsson bóndi í Múlakoti, formaður stjórnar Sjálfseignarstofnunarinnar, Anton Kári Halldórsson oddviti sveitarstjórnar í Rangárþingi eystra og Andri Guðmundsson forstöðumaður Skógasafns
Vottur að þessari afhendingu var Héðinn Bjarni Antonsson fulltrúi nýjustu kynslóðar safngesta.